Innheimta erlendis

Á fyrirtækið þitt ógreiddan reikning hjá viðskiptavini erlendis? Eða hefur lántaki bankans flutt úr landi? FOCUS Lögmenn aðstoða íslensk fyrirtæki og fjármálastofnanir við að innheimta kröfur erlendis. Þú ræðir málið við lögmann í Reykjavík sem kemur því í réttan farveg með samstarfsaðila í viðkomandi landi.

Ræða kröfu erlendis

Hvernig metum við kröfuna?

Við byrjum á að fara yfir hver skuldar, hvar viðkomandi er og á hverju krafan byggist. Ógreiddur vörureikningur sem kaupandi hefur mótmælt getur kallað á aðra nálgun en lán sem féll í vanskil eftir að lántaki flutti úr landi.

Með samstarfsaðila á staðnum metum við hvaða leiðir koma til greina og hvað þær gætu kostað. Þú færð skýringar á íslensku og tekur ákvörðun um næstu skref.

Hvað þarf til að byrja?

  • Landið þar sem skuldari er búsettur eða fyrirtækið starfar.
  • Fjárhæð kröfunnar, gjaldmiðil, gjalddaga og stutta lýsingu á tilefni hennar.
  • Upplýsingar um fyrri innheimtutilraunir, greiðslur og hvort kröfunni hefur verið mótmælt.

Samningur, reikningar og viðeigandi samskipti nýtast við matið. Sé dómur þegar til, taktu fram í hvaða landi hann féll. Stutt lýsing nægir í fyrstu fyrirspurn.

Einn reikningur eða regluleg mál frá banka

Við aðstoðum bæði fyrirtæki sem þurfa að fylgja eftir stökum reikningi og banka sem vilja ræða reglulegt samstarf. Fyrir endurtekin mál förum við með ykkur yfir afhendingu gagna, hver annast samskipti og hvernig þið viljið fá fréttir af framvindunni.

Hver tekur við málinu erlendis?

Katrín Smári Ólafsdóttir hefur frá 2008 ræktað tengsl við lögmenn og innheimtuaðila með þátttöku í fagstarfi og á ráðstefnum í Evrópu og víðar. Hún gegnir starfi aðalritara European Collectors Association (ECA). FOCUS á einnig aðild að League International for Creditors (LIC). FOCUS er jafnframt skráð hjá FENCA sem „affiliate member“ á Íslandi.

Þessi tengsl nýtast þegar finna þarf aðila sem þekkir innheimtu í landinu þar sem skuldarinn er. Þú heldur sambandi við FOCUS á Íslandi á meðan málinu er fylgt eftir.

Eigum við að skoða málið?

Segðu okkur í hvaða landi skuldarinn er og hvers konar kröfu er um að ræða. Ef þú hefur áhuga á samstarfi fyrir banka eða fyrirtæki má einnig nota formið til að óska eftir samtali.

Ræða kröfu erlendis

IS