Innheimta á Íslandi fyrir erlenda kröfuhafa

FOCUS Lögmenn aðstoða erlend fyrirtæki, banka, lögmannsstofur og innheimtuaðila þegar viðskiptavinur eða lántaki hér á landi skuldar þeim fé. Við metum kröfuna og önnumst samskipti við kröfuhafa á ensku.

Ræða kröfu á Íslandi

Mat á kröfu og framhald máls

Við skoðum gögnin, hvort greitt hafi verið inn á kröfuna og hvort skuldari hafi hreyft mótmælum. Að því loknu ræðum við möguleikana við kröfuhafa, svo sem greiðsluáskorun, samninga eða málshöfðun. Við förum yfir þóknun og væntanlegan kostnað áður en ákveðið er hvernig málinu verður fylgt eftir.

Gögn sem nýtast

Gott er að tilgreina nafn skuldara, fjárhæð, gjaldmiðil og gjalddaga. Samningar, reikningar, staðfesting á afhendingu og fyrri samskipti hjálpa við matið. Ef dómur hefur þegar gengið erlendis biðjum við um upplýsingar um dómstólinn og landið þar sem hann féll.

Samstarf við erlenda kröfuhafa

Við tökum við fyrirspurnum vegna einstakra mála og ræðum einnig reglulegar tilvísanir frá erlendum lögmönnum, lánastofnunum og innheimtuaðilum.

Katrín Smári Ólafsdóttir hefur frá 2008 ræktað tengsl við lögmenn og innheimtuaðila með þátttöku í fagstarfi og á ráðstefnum í Evrópu og víðar. Hún gegnir starfi aðalritara European Collectors Association (ECA). FOCUS á einnig aðild að League International for Creditors (LIC). FOCUS er jafnframt skráð hjá FENCA sem „affiliate member“ á Íslandi.

Hafðu samband við FOCUS

Stutt lýsing á málinu nægir til að hefja samtalið. Við látum vita hvaða gögn þarf til að meta næstu skref.

Ræða kröfu á Íslandi

IS